Sannprófun

Spánákvæmni

Hvernig stóðst spáin? Hér eru síðustu 90 dagar bornir saman við mælingar á sama stað og sama tíma.

Spásaga

137 spáútgáfur hafa verið varðveittar frá 18. nóv.. Sjá stöðu söfnunar ↗

Samanburður við raunmælingar

Engin gild matspör eru komin fyrir þetta val. Fyrsta mat fyrir sex klukkustunda spá þarf nýja mælingu að minnsta kosti sex klukkustundum eftir að spáin var sótt.

Staðbundnar leiðréttingar

Grunnspár eru birtar beint frá gagnaveitum. Tilraun með hitaleiðréttingu metur meðalskekkju á fyrri dögum og prófar hana á nýrri mælingum. Hún þarf minnst 30 aðskilda þjálfunardaga og 10 prófdaga.

Gögn fyrir fullgilt leiðréttingarpróf hafa ekki safnast.

Aðferð

Við notum nýjustu spá sem var sannanlega komin í kerfið fyrir valinn fyrirvara. Jákvæð meðalskekkja merkir ofspá. MAE mælir meðalstærð villu og RMSE gefur stærri villum meira vægi. Vindátt er metin eftir stystu leið á hring og sleppt í logni.

Úrkomulíkur eru metnar með Brier-stigi fyrir meira en 0,1 mm á klukkustund. Lægra gildi er betra. Fjöldi para fylgir hverjum veðurþætti.